Hönnun þjóðartilbeiðsluhúss bahá’ía í Kanada kynnt

Hönnun þjóðartilbeiðsluhúss bahá’ía í Kanada kynnt

Miðvikudagur, 4 Nóvember 2026

Í október 2026 var opinberlega kynnt hönnun nýs þjóðartilbeiðsluhúss bahá’ía í Kanada, sem reist verður í Markham í Ontario. Markmið tilbeiðsluhússins að skapa stað þar sem fólk af öllum trúarbrögðum og úr öllum samfélagshópum geti komið saman til bænar, íhugunar og þjónustu við samfélagið. Hönnunin endurspeglar bæði andlegar hugsjónir bahá’í trúarinnar og djúpa tengingu við náttúru svæðisins, sögu þess og samfélagslífið sem þegar hefur þróast á staðnum.

Við athöfnina, þar sem hönnunin var afhjúpuð, komu saman fulltrúar bahá’í samfélaga víðs vegar að úr Kanada, íbúar nágrennisins, börn og ungmenni úr nærliggjandi samfélögum auk kjörinna fulltrúa stjórnvalda. Meðal þeirra voru borgarstjórinn Frank Scarpitti og þingmaðurinn Jonathan Tsao. Viðstaddir fögnuðu áfanga sem markar upphaf nýs kafla í sögu bahá’ía í Kanada og í þróun samfélagsstarfs á svæðinu.

Gestir skoða líkan af þjóðartilbeiðsluhúsinu.
Gestir skoða líkan af þjóðartilbeiðsluhúsinu.

Fyrir hönd Andlegs þjóðarráðs bahá’ía í Kanada lýsti Karen McKye tilbeiðsluhúsinu sem stað sem tilheyrði öllum, óháð trúarbrögðum, uppruna eða lífsskoðunum. Hún sagði að þar gæti fólk fundið frið til íhugunar, styrkt samband sitt við skapara sinn og sótt innblástur til þjónustu við fjölskyldu sína, samfélag og starfsvettvang. Hún lagði áherslu á að í bahá’í trú væru tilbeiðsla og þjónusta tvær óaðskiljanlegar hliðar mannlífsins og að tilgangur tilbeiðsluhússins væri að gera þessa einingu sýnilega í verki.

Fram kom að draumurinn um kanadískt þjóðartilbeiðsluhús ætti sér langa sögu. Skömmu eftir stofnun Andlegs þjóðarráðs bahá’ía í Kanada árið 1948 hófst vinna við að afla lands fyrir slíka byggingu. Núverandi skóglendi í Markham var keypt árið 1968 og hefur í nærri sex áratugi verið varðveitt sem staður bænar og íhugunar. Árið 2023 tilkynnti Allsherjarhús réttvísinnar að reist yrði þjóðartilbeiðsluhús í Kanada á þessu svæði, í nágrenni þjóðarmiðstöðvar bahá’ía. Afhjúpun hönnunarinnar markar því mikilvægan áfanga í verkefni sem hefur verið í mótun í meira en hálfa öld.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að hönnun byggingarinnar taki mið af menningarlegri og andlegri merkingu landsins. Margaret Sault, leiðtogi frumbyggjaþjóðarinnar Mississaugas of the Credit First Nation, sagði að framtíðartilbeiðsluhúsið myndi stuðla að því að sameina fólk af ólíkum trúarbrögðum og uppruna í sameiginlegri leit að einingu og þjónustu. Hún lagði áherslu á að hugmyndin um einingu mannkynsins væri afar mikilvæg á tímum þar sem sundrung og misskilningur einkenndu víða samfélagsumræðuna.

Arkitekt byggingarinnar, James Jing Yi Jiang, skýrði frá því að hann hefði sótt innblástur í náttúru svæðisins, skóginn umhverfis lóðina og samtöl við frumbyggja sem tengjast landinu. Hann sagðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að tilbeiðsluhúsið ætti ekki aðeins að standa á landinu heldur að virðast vera eðlilegur hluti þess. Byggingin er samsett úr níu eins einingum sem raðast á ósamhverfan hátt. Með því er táknræn mynd gefin af bahá’í meginreglunni um einingu í fjölbreytileika, þar sem margbreytileikinn varðveitist um leið og sameiginleg heild verður til.

Tilbeiðsluhúsið séð að innan.
Tilbeiðsluhúsið séð að innan.

Önnur meginhugmynd hönnunarinnar er tengslin við náttúruna og sérstaklega vindinn. Sveigðar og uppstígandi viðarplötur mynda mjúkar línur sem kalla fram tilfinningu fyrir stöðugri hreyfingu. Markmiðið er ekki að sýna vindinn beint heldur að vekja upplifun af nærveru hans. Náttúrulegir viðarlitir og opin ásýnd byggingarinnar eiga jafnframt að láta hana falla eðlilega að skóginum sem umlykur hana.

Lóðin hefur þegar um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í lífi samfélagsins. Ungmenni sem taka þátt í siðferðilegum og andlegum menntaverkefnum bahá’ía heimsækja reglulega svæðið til bænar og íhugunar. Að sögn Ayafor Ayafor, ráðgjafa í Álfuráði Ameríku, styrkir slík sameiginleg tilbeiðsla fólk í viðleitni sinni til að þjóna samfélögum sínum og efla samvinnu og samheldni.

Margir ræðumenn bentu á að samfélagið hefði mikla þörf fyrir stað sem þennan. Jonathan Tsao lýsti tilbeiðsluhúsinu sem stað þar sem bænin kalli fólk til þjónustu við samfélagið og sagði að slík framtíðarsýn væri sérstaklega mikilvæg á tímum átaka, sundrungar og þjáninga. Hann lýsti jafnframt yfir stuðningi sínum við hugsjónina um einingu mannkynsins.

Nokkrir af þeim sem fluttu ræður af þessu tilefni.
Nokkrir af þeim sem fluttu ræður af þessu tilefni.

Að lokum lýsti Karen McKye tilbeiðsluhúsinu sem mögulegum „vita einingar“ og „griðastað friðar“ fyrir alla íbúa Kanada. Þegar byggingunni verður lokið er henni ætlað að vera opinn og aðgengilegur staður fyrir fólk af öllum trúarbrögðum og lífsskoðunum, þar sem tilbeiðsla, samfélagsþjónusta og samkennd geta farið saman og stuðlað að betra samfélagi fyrir alla.

Upprunalega fréttin: House of Worship: Design unveiled for Canada’s national Bahá’í temple [news.bahai.org]

Leit