Úsbekistan - Umhverfis súmalak-pottinn kviknar ný sýn á nágrannasamfélagið

Úsbekistan - Umhverfis súmalak-pottinn kviknar ný sýn á nágrannasamfélagið

Miðvikudagur, 4 Nóvember 2026

Bahá’í samfélagið í Úsbekistan stóð fyrir áhugaverðri ráðstefnu um hlutverk hverfa og nágrannatengsla í að efla samheldni, traust og samfélagsþróun.

Súmalak er hefðbundinn sætur hveitigrautur sem er vinsæll víða í Mið-Asíu þegar vorið gengur í garð. Rétturinn krefst langrar suðu og stöðugrar hræringar í marga klukkutíma, sem leiðir fólk saman í sameiginlegu verkefni. Í fjölbýlishúsi í Tashkent hefur undirbúningur súmalaks orðið tilefni til þess að nágrannar hittast í sameiginlegum garði, skiptast á að vaka yfir pottinum og ræða hvernig þeir geti byggt upp sterkari og umhyggjusamari tengsl sín á milli.

Þetta hús er hluti af svokallaðri makhalla, hefðbundinni hverfiseiningu sem hefur lengi verið mikilvægur þáttur í félagslífi Úsbeka. Á ráðstefnunni var sjónum beint að því hvernig íbúar, samfélög og stofnanir geti unnið saman að því að þróa ekki aðeins efnislega innviði hverfanna heldur einnig þau mannlegu tengsl sem skapa raunverulega velferð.

Ein af ræðumönnunum var Zamira Kadirova, íbúi í hverfinu og ritari Andlegs svæðisráðs bahá’ía í Tashkent. Hún lýsti því hvernig hún hafi viljað nálgast hverfisnefndina ekki sem einhver sem leitaði aðstoðar heldur sem einstaklingur sem vildi leggja sitt af mörkum. Með tímanum hafi nágrannar hennar tekið þátt í sameiginlegum verkefnum, meðal annars við viðhald og endurbætur á húsnæðinu.

Frá ráðstefnu um hlutverk hverfa og nágrannatengsla.
Frá ráðstefnu um hlutverk hverfa og nágrannatengsla

Ráðstefnan var skipulögð af Bahá’í skrifstofu opinberra mála í Úsbekistan og var sú fjórða í röð samráðsfunda sem hófust árið 2025. Þátttakendur komu úr röðum stjórnvalda, hverfisyfirvalda, frjálsra félagasamtaka, trúfélaga, fræðasamfélagsins og fjölmiðla. Á fyrri fundum hafði verið fjallað um siðferðileg og andleg gildi í samfélaginu og fjölskyldunni, en nú var athyglinni beint að hverfinu sem vettvangi þar sem þessi gildi fá að vaxa og dafna í daglegum samskiptum fólks.

Dilmurod Yusupov, rannsakandi og baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks, benti á að margir hugsi um makhalla fyrst og fremst sem stjórnsýslueiningu. Hann lagði áherslu á að fólk þyrfti að líta á hverfið sem samfélag fólks fremur en nefnd eða stofnun. Farrukh Rasulov frá Bahá’í skrifstofu opinberra mála bætti við að heilbrigt hverfi byggðist á samspili þriggja aðila: einstaklingsins, samfélags nágrannanna og þeirrar nefndar sem þjónar hverfinu. Hlutverk nefndarinnar væri ekki að gera allt sjálf heldur að samræma og virkja krafta samfélagsins.

Mikil áhersla var lögð á siðferðilegt uppeldi barna og ungmenna. Dæmi voru nefnd um námskeið sem efla virðingu, samvinnu og ábyrgð. Sérstaklega var sagt frá dreng með heyrnar- og talörðugleika sem tók þátt í einu slíku námskeiði og upplifði fullt samþykki jafningja sinna. Þátttakendur töldu slíka reynslu sýna hvernig virðing fyrir mannlegri reisn geti orðið grundvöllur sterkari samfélaga.

Í umræðunum kom aftur og aftur fram að lykillinn að farsælu nágrannasamfélagi væri samráð og gagnkvæmt traust. Þegar íbúar og hverfisnefndir hittast aðeins til að ræða vandamál sé hætta á að þeir líti hver á annan sem hlutverk frekar en manneskjur. Traust myndist hins vegar þegar fólk kynnist hvert öðru og starfar saman að sameiginlegum markmiðum. Framtíðarverkefni Bahá’í skrifstofunnar munu meðal annars kanna frekar hvernig slíkt traust geti orðið undirstaða samfélagslegrar framþróunar.

Börn og unglingar vinna við að bæta umhverfið.
Börn og unglingar vinna við að bæta umhverfið.

Upprunalega fréttin: Uzbekistan: Around a pot of sumalak, a different kind of neighborliness emerges [news.bahai.org]

Leit